Search
Close this search box.
Search
Close this search box.

Skilmálar

1. Almennt

Neytendur eru hvattir til þess að lesa skilmála þessa vandlega áður en þeir versla í vefverslun Kælitækni ehf., www.kaelitaekni.is.
Með því að nota vefsíðu og vefverslun Kælitækni ehf. samþykkir og viðurkennir neytandi að hann hafi kynnt sér, skilið og samþykkt, án fyrirvara, skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma.
Verslunin er opin frá kl. 8 – 16 alla virka daga. Símanúmerið er 440-1800. Ef þú hefur einhverjar ábendingar um vefverslun, þjónustu eða verslun okkar biðjum við þig um að senda okkur tölvupóst á netfangið [email protected].
Sért þú undir 16 ára aldri viljum við vekja athygli þína á að nauðsynlegt er að þú og forráðamenn þínir kynnið ykkur skilmála þessa áður en þú skráir þig inn á síðuna.
Kælitækni ehf. áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum þessum án fyrirvara.

2. Verð

Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur.
Kælitækni ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunar er að ræða.

3. Vörur til einkanota

Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum Kælitækni  ehf. án tilskilinna leyfa. Kælitækni ehf. áskilur sér rétt til að stöðva afgreiðslu pantana eða halda eftir hluta þeirra ef talið er að þær brjóti í bága við þessa skilmála.
Kælitækni ehf. áskilur sér rétt til að ógilda pantanir sem og endurgreiða neytanda, ef greiðsla hefur verið innt af hendi. 

4. Nákvæmni upplýsinga

Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.

5. Greiðsluleiðir

Hægt er að inna greiðslu af hendi með kreditkorti, Pei eða Netgíró. Kælitækni ehf. er eigandi vörunnar þar til andvirði hennar er að fullu greitt. Öll verð eru gefin upp með VSK.

6. Heimsending og ferill pantana

Þegar neytandi verslar í vefverslun Kælitækni ehf. er hægt að velja á milli þess að sækja í verslun eða fá pöntunina heimsenda.
Þegar valið er að sækja vöruna í verslun Kælitækni er hægt að sækja hana gegn framvísun á sölunótu.
Þegar valið er að fá vöruna á næsta pósthús er sendingartími að jafnaði 1-3 virkir dagar. Sendingartími er mismunandi eftir því hvar neytandi býr.
Pósturinn keyrir út pantanir utan höfuðborgarsvæðisins. Utan höfuðborgarsvæðis er heimsending einungis í boði á þeim svæðum sem Pósturinn býður upp á. Nánari upplýsingar á postur.is.
Heimsending er einungis í boði innanlands.
Greitt er samkvæmt gjaldi sem bætist við í greiðsluferlinu.
Vara er ætíð send á ábyrgð og kostnað kaupanda. Seljandi ber ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem verða kann vegna seinkunar á afhendingu eða rangrar afhendingar og/eða ef vara kemur gölluð frá erlendum birgjum. Seljandi ber ennfremur ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem má rekja til aðstæðna (force majeure) sem seljandi getur ekki ráðið við þ.á.m. verkföll, verkbönn, eldsvoða, stríðsástand, skipsskaða eða aðrar sambærilegar aðstæður.

7. Skilafrestur

Seljandi tekur ekki við vöru sem kaupandi vill skila nema um lagervöru sé að ræða og að skilin fari fram innan 15 daga frá afhendingu vörunnar, kvittun fyrir vörukaupum þarf að fylgja með sem og varan þarf að vera í upprunalegum umbúðum og með öllum fylgihlutum. Skilyrði fyrir því að seljandi taki á móti vörunni er að hún sé í sama ásigkomulagi og við afhendingu. Kvartanir um galla á vöru skulu berast seljanda sem fyrst, helst skriflega og innan 8 daga frá afhendingu. Ef ástæður þess að vöru er skilað verða ekki raktar til mistaka seljanda og/eða galla á vörunni áskilur fyrirtækið sér rétt til að draga allan kostnað sem af þessu hlýst frá inneign kaupanda.

8. Galli

Ef neytandi kaupir gallaða(r) vöru(r) í vefverslun Kælitækni ehf er boðið upp á viðgerð, nýja(r) vöru(r), afslátt eða endurgreiðslu kaupverðs. Það fer eftir atvikum og eðli gallans hvaða leið er valin hverju sinni. Um rétt neytanda, þ.e.a.s. einstaklingar sem versla í vefverslun Kælitækni ehf.,  en ekki í þágu atvinnurekstrar, vegna galla vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003. Varðandi rétt fyrirtækja og einstaklinga sem versla í vefverslun Kælitækni ehf. í þágu atvinnurekstrar vísast til laga um lausafjárkaup nr. 50/2000.

9. Meðferð persónuupplýsinga

Þegar neytandi verslar vöru(r) í vefverslun Kælitækni ehf. þarf að gefa upp kreditkortaupplýsingar og aðrar persónuupplýsingar, þ.e. nafn neytanda, heimilisfang, búsetuland, símanúmer og netfang. 
Kælitækni ehf. fer með allar persónuupplýsingar af ýtrustu varúð og sem algjört trúnaðarmál.
Upplýsingar frá neytanda verða ekki afhentar né seldar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Upp geta komið tilvik þar sem Kælitækni ehf. þarf á aðstoð þriðja aðila til að veita ákveðna þjónustu. Í slíkum tilvikum getur félagið þurft að deila persónuupplýsingum með þriðja aðila til að það fyrirtæki geti veitt Kælitækni ehf., og á endanum neytanda, þjónustu. Má sem dæmi nefna vinnslu á kreditkortafærslum fyrir Kælitækni ehf. Einnig þarf félagið að láta flutningsaðila fá heimilisfang og símanúmer svo að hann geti sent vöru(rnar) heim til neytanda. Kælitækni ehf. hefur einnig gert samning við þriðja aðila um skýjaþjónustu en hún er netþjónusta sem gerir félaginu kleift að nota hugbúnað og tæki hjá skýjaþjónustunni. Slík þjónusta felst m.a. í því að varðveita upplýsingar í netþjónum og veflausnum. Slíkir þjónustuaðilar hafa í gildi viðeigandi stefnur og verkferla til að tryggja að upplýsingar sem þeir meðhöndla séu varðveittar með öruggum hætti hverju sinni.
Greiðsluupplýsingar eru ávallt sendar um örugga greiðslusíðu sem hlotið hefur vottun.
Kælitækni ehf. takmarkar persónuupplýsingar sem þriðja aðila er veitt og eru slíkar persónuupplýsingar aðeins veittar í þeim tilgangi að veita neytanda slíka þjónustu. Kælitækni ehf. veitir slíkum þriðju aðilum strangt eftirlit til að tryggja friðhelgi viðskiptavina sinna.
Kælitækni ehf. notar myndavélaeftirlit í verslun sinni. Upptökurnar eru geymdar í dulkóðuðum skrám í allt að 90 daga og þeim eytt eftir það. Ef þær tengjast rekstri máls fyrir dómstólum þá eru þær hugsanlega geymdar lengur. 
Öll meðhöndlun persónuupplýsinga þeirra sem neytandi gefur Kælitækni ehf. er í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau eru á hverjum tíma. Persónuupplýsingum er fyrst og fremst safnað til þess að hægt sé að versla í vefversluninni og bæta þjónustu við neytanda.
Með því að nota vefsíðu og vefverslun Kælitækni ehf. veitir neytandi ótvírætt samþykki sitt og  viðurkennir vinnslu og skrá Kælitækni ehf. á persónuupplýsingum sínum. 

10. Vafrakökur (e.cookies)

“Cookies“ eða vafrakökur eru upplýsingar sem vefforrit neytanda geymir í tölvu hans að beiðni netþjóna. Kælitækni ehf. notar þessar upplýsingar m.a. til að bera kennsl á notandann og vita hversu oft hann heimsækir vefsíðuna/vefverslunina, hvað neytandi setur í körfuna sína, hvernig fyrri pantanir neytanda voru og til að kynna neytanda fyrir vörum sem gætu vakið áhuga.
Vafrakökurnar eru hannaðar til að þjóna þörfum neytanda og notar Kælitækni ehf. vefkökur aðallega til að gera vefsíðuna og vefverslunina ánægjulegri í notkun fyrir neytandann og bæta hans upplifun.
Vafrakökurnar eru ýmist notaðar fyrir tilteknar þjónustuleiðir eða til þess að safna tölfræðilegum upplýsingum til að bæta vefsíðu Kælitækni ehf. Sumar vafrakökurnar eru tímabundnar og hverfa því þegar notandinn fer af vefsvæðinu en aðrar haldast lengur inni. Viðvarandi vafrakökur vistast á tölvu notandans og muna val og/eða aðgerðir hans á vefsvæðinu og muna því fyrri aðgerðir til að gera notandanum auðveldara fyrir að vafra um vefsvæðið. Að auki eru notaðar staðbundnar vafrakökur sem eru tengdar tilteknum markaðsherferðum og hverfa þegar herferðunum lýkur.
Flestir vafrar eru stilltir þannig að þeir taka sjálfvirkt við vafrakökum en hægt er að stilla þá þannig að neytandi þurfi að samþykkja hvert tilvik. Enda þótt neytandi kjósi að leyfa ekki vafrakökur getur neytandi samt sem áður notað flest alla hluta vefsíðu Kælitækni ehf., þar á meðal verslunarkerfið.
Kælitækni ehf. notar Google Analytics frá Google og Facebook Pixels til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefsvæðið eru ýmsum nafnlausum upplýsingum safnað saman og þær sendar Kælitækni ehf., t.d. frá hvaða vefsvæði er komið, tími og dagsetning komu á vefsvæðið, leitarorð sem notað var og gerð vafra og stýrikerfis. Kælitækni ehf. notar þessar upplýsingar svo til að gera endurbætur á vefsvæði sínu notendum sínum til hagsbóta. Google Analytics og Facebook Pixels nota sínar eigin kökur en Kælitækni ehf. áskilur sér rétt til að birta notendum vefsvæðisins auglýsingar í gegnum endurmarkaðssetningarkerfi Google Analytics og Facebook Pixels. Upplýsingarnar eru skráðar með aðstoð vafrakaka og geta þeir sem ekki vilja sjá slíkar auglýsingar slökkt á notkun þeirra.
Með því að nota vefverslun Kælitækni ehf. samþykkir neytandi að Kælitækni ehf. safni upplýsingum sjálfkrafa með vafrakökum.
Nánari upplýsingar varðandi eyðingu eða stjórn á vafrakökum er að finna á
http://www.aboutcookies.org.uk/. Möguleikar neytanda á notkun vefsíðu Kælitækni ehf. gætu takmarkast við slíkar breytingar.
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Sendingar úr kerfi Kælitækni ehf. kunna að nota persónuupplýsingar, s.s. búsetu, aldur eða viðskiptasögu, til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima síðunnar. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. 

11. Lög og varnarþing

Skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna skilmála þessa skal það rekið fyrir héraðsdómi Reykjavíkur. Að öðru leyti en að ofan greinir gilda um skilmála þessa ákvæði gildandi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (nú nr. 77/2000), ákvæði laga um neytendasamninga nr. 16/2016, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem neytendur eiga rétt á í lögum um neytendasamninga byrja að líða þegar móttaka vöru hefur átt sér stað.

Scroll to Top