Kæli- og frystiskápar
Gæða vörur fyrir fjölbreytta starfsemi
Kælitækni býður upp á fjölbreytt úrval af kæli- og frystiskápum sem henta mismunandi starfsemi.
- Stórmarkaðir og verslanir
- Hótel og veitingastaðir
- Fyrirtæki og stofnanir
Við vinnum með leiðandi birgjum sem leggja áherslu á orku sparandi og umhverfisvænar lausnir þar sem falleg hönnun og endingartími eru í fyrirrúmi.



Leiðandi í yfir 35 ár
Tefcold er þekkt fyrir breiða vörulínu, stuttan afhendingartíma og gott vörval á lager – sem gerir Tefcold að traustum samstarfsaðila fyrir fjölbreyttar lausnir í verslunum, hótel og veitingahúsum og öðrum atvinnugreinum.
Með áherslu á einfaldleika, endingargæði og sveigjanleika, hefur Tefcold byggt upp gott orðspor sem framúrskarandi valkostur fyrir fagfólk.
- Stuttur afhendingartími
- Gott úrval í orkuflokki A og B
- Umhverfisvænir kælimiðlar

Sérhannað fyrir þínar þarfir
Arneg er ítalskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í kæli- og frystiskápum fyrir smásölu og atvinnurekstur. Fyrirtækið leggur áherslu á nýsköpun, hönnun og sjálfbærni og sameinar nýjstu tækni við ítalska fagurfræði. Arneg vinnur út frá sterkum gildum líkt og samfélagsábyrgð, orkunýtingu og virðingu fyrir umhverfinu.
- Nýjasta tækni
- Falleg hönnun
- Áhersla á orkusparnað og sjálbærni



Austurrísk nýsköpun
IDEAL AKE hefur í yfir 70 ár skapað nýstárlegar lausnir sem móta framtíð fageldhúsa og veitingareksturs um allan heim. Þeir sameina hagnýta hönnun, tæknilega nákvæmni og djúpa virðingu fyrir efnisgæðum og sjálfbærni. Hugmyndaauðgi er hluti af menningunni og lögð áhersla á að hugsa út fyrir kassann.
- Ástríða fyrir gæðum, endingu og sjálfbærri framleiðslu
- Hönnun sem sameinar notagildi, orkunýtingu og fagurfræði
- Vörur sem byggja á stöðugri nýsköpun og nánu samtali við fagfólk í eldhúsrekstri

Nákvæmni og gæðastýring
Síðan 1989 hefur IRINOX verið brautryðjandi í framleiðslu á blast chillers og hraðfrystum sem tryggja ferskleika, matvælaöryggi og áreiðanleika. Lausnir þeirra eru hannaðar með það að markmiði að hámarka gæði hráefna, lágmarka matarsóun og styðja við öfluga matvælavinnslu með sjálfbærni að leiðarljósi.
- Fyrirtæki sem hefur mótað alþjóðlega staðla í kælitækni
- Lausnir sem tryggja nákvæma kælingu og frystingu án þess að skerða gæði
- Endingargóður búnaður sem styður við fagfólk
