Search
Close this search box.

TEKO – Heimsókn

Í síðustu viku fengum við hjá Kælitækni ehf þá ánægju að fá í heimsókn Roman Weingart og Jonas Linnemann frá Teko, samstarfsaðila okkar og birgja. 

Ástæða heimsóknarinnar var samvinnuverkefni og þróun að nýrri gerð vélakerfis , sem felur í sér uppsetningu og gangsetningu á  CO2 vatnskælikerfi í álveri. Þetta tækniundur mun leiða til marktækra framfara í afköstum og skilvirkni, er hannað til að veita undirgólfskælingu fyrir herbergi með rofaskápum og tölvubúnaði í álverinu.

Hér eru nokkrar tæknilegar upplýsingar um kerfið:

  • CO2 kælikerfi
  • Afkastageta 200 kW við 7/12 °C vatnshita
  • Notað fyrir undirgólfskælingu herbergja með rofaskápum og netþjónum í álveri
  • Með CAREL stjórnkerfi
  • Með pressum frá Dorin

Við þökkum Roman og Jonas kærlega fyrir komuna og samstarfið í gegnum allt ferlið. Við erum stolt af því að hafa getað lagt okkar af mörkum til þessa verkefnis og hlökkum til áframhaldandi samstarfs við  Teko. 

Scroll to Top