Gólfhitastýringar
Einfaldar og þægilegar
ENGO gólfhitastýringar gera þér kleift að stjórna hitanum nákvæmlega í hverju rými, á einfaldan og þægilegan hátt. Kerfið hentar bæði nýjum og eldri húsum, er auðvelt í uppsetningu og tryggir stöðugt og þægilegt inniloft allt árið.
Hitastýringarnar eru látlausar, nettar og passa vel inn í flest rými — og með snjallforriti geturðu séð og stýrt hitanum hvar sem er.
Kostir ENGO gólfhitastýringa
- Halda réttu hitastigi í hverju herbergi
- Hjálpar til við að dragar úr orkunotkun
- Einfalt viðmót í síma
- Jafn og stöðugur hiti yfir daginn
Sendu okkur fyrirspurn hér að neðan og fáðu tilboð í gólfhitastýringar
Kerfi sem einfaldar daglega notkun
ENGO er heilstætt gólfhitastýrikerfi þar sem hitastýringar, stjórnbox og vatnslokar vinna saman. Kerfið sér sjálft um að jafna hitann og tryggja að gólfhitinn nýtist sem best — án þess að þú þurfir stöðugt að stilla kerfið.
Notendavænt og hentugt
Með ENGO appinu hefurðu einfalda yfirsýn yfir allt kerfið. Þar geturðu stillt hitann eftir þínum þörfum, sett tímasetningar og tryggt að hitinn sé aðeins á þegar þess þarf. Þetta er bæði þægilegt og sparar orku.










