NordCap Nordic

Þrír áratugir á evrópskum markaði

NordCap Nordic er leiðandi heildsala og verksmiðjufulltrúi í kæli-, eldunar- og uppþvottabúnaði á Norðurlöndum. Með meira en 8.000 vörur og yfir 40 vandlega valda framleiðendur, er NordCap staðráðin í að bjóða sérfræðiráðgjöf, óhagganleg gæði og gott framboð.

Kælitækni er nú opinber fulltrúi NordCap á Íslandi. Þetta þýðir að íslenskir viðskiptavinir geta nýtt sér þennan fjölbreytta vörulista í gegnum þekkt samstarfsaðila – með þjónustu, uppsetningu og langtímaeftirfylgni.

8000+

Vörur

40+

Sérhæfðir framleiðendur

30+

Ára reynsla

Lausnir fyrir alla

NordCap-úrvalið nær yfir alla helstu geira í matvæla- og þjónustuiðnaði – frá litlum veitingastöðum til stórra stofnana og smásölukeðja.

Veitingastaðir

Gæða eldunar- og kælikerfi fyrir alla stærði veitingastaða

Veisluþjónusta

Sveigjanlegar lausnir fyrir stór og lítil verkefni

Hótel og gistiheimili

Hótel og gistihús sem krefjast áreiðanlegrar matvlælaþjónustu

Smásala

Sérsniðnar smásölulausnir og kæliborð fyrir verslanir

Heilbrigðisþjónusta

Búnaður sem uppfyllir ströngustu kröfur

Mötuneyti

Eldhúslausnir fyrir fyrirtæki, skóla og opinberar stofnanir

Ideal AKE

Fagleg eldunar- og framleiðslulausn

Ideal AKE er austurrískt fyrirtæki með yfir 80 ára sögu í framleiðslu á faglegum kæli- og hitunarlausnum. Frá upphafi í Salzkammergut-héraðinu hefur fyrirtækið þróast í alþjóðlegan leiðtoga, þar sem vörur þess hafa skilgreint iðnaðinn og eru í dag selt víðs vegar um heiminn.

Sérstaða Ideal AKE liggur í samspili hefðar og nýsköpunar – staðlaðar lausnir eru framleiddar með hágæða efni í Austurríki, en jafnframt er boðið upp á sérsniðnar hugmyndarlausnir þar sem einstakir styrkleikar samstarfsaðila koma saman.

Nuovair

Hraðkæling og varðveisla matvæla

Nuovair er ítalskt fyrirtæki sem framleiðir hraðkælibúnað. Þegar matvæli eru kæld hratt niður helst bragðið, áferðin og næringargildið — og tryggir matvælaöryggi.

Fogal

Kæling og frysting fyrir smásölu og fageldhús

Fogal framleiðir kæli- og frystibúnað fyrir verslanir og fageldhús. Áratugum saman hefur búnaðurinn verið þróaður fyrir umhverfi þar áreiðanleiki og orkunýtni skipta miklu máli

Moduline

Eldun og endurhitun frá eldhúsi að borði

Moduline er ítalskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í eldunar- og endurhitunarbúnaði fyrir atvinnueldhús. Lausnir þeirra ná frá undirbúningi að framreiðslu og eru hannaðar til að skila jöfnum gæðum, betra geymsluþoli og minni matarsóun.

Úrvalið nær yfir Retherma endurhitunarkerfi, hold-lausnir fyrir heitt og kalt, cook & hold ofna, reykofna, þrýstiofna og salamander-grill. Áherslan er á orkunýtni og rekstrarhagræðingu sem dregur úr álagi á starfsfólk.

We grill and more

Háhita grillbúnaður fyrir fageldhús

We Grill and More framleiðir háhita grillbúnað sem skilar ekta steikhúsaáferð. Grillið nær 850°C á aðeins þremur mínútum, sem gefur stökka áferð að utan og safaríkt kjöt að innan.

Tækjunum fylgir ekki reykur eða lykt líkt og með hefbundnu kolagrilli, með lágri orkunotkun og lágmarks viðhaldi. Þetta gerir þau að hagkvæmum og umhverfisvænum kosti fyrir veitingastaði og fagleg eldhús.

Við hjálpum þér að finna réttu lausnina

Scroll to Top

Við notum vafrakökur til að tryggja góða virkni vefsins og bæta upplifun þína. Skoða nánar