Sérfræðingar í kælitækni síðan 1962
Orkusparandi og umhverfisvænar lausnir fyrir atvinnulífið
Kælitækni sérhæfir sig í kæli- og frystikerfum, varmadælum og heildarlausnum fyrir fyrirtæki í öllum stærðum og atvinnugreinum. Við vinnum með leiðandi framleiðendum og leggjum áherslu á að bjóða upp á hagkvæmar og sjálfbærar lausnir sem henta íslenskum aðstæðum.
Hvort sem þú rekur hótel, stórmarkað eða iðnaðarfyrirtæki – við finnum lausnina sem passar.
Hótel, veitingastaðir og stóreldhús
Kælitækni býður upp á heildarlausnir fyrir fyrirtæki sem þurfa á kælingu eða frystingu að halda – allt frá kælikerfum og frystibúnaði til iðnaðarhurða, innréttinga og hönnunar á rýmum. Við vinnum með hótelum, veitingastöðum, mötuneytum og fjölbreyttum vinnustöðum um land allt.
Stórmarkaðir og verslanir
Kælitækni býður upp á heildarlausnir fyrir stórmarkaði og verslanir. Hvort sem um er að ræða sjálfstæðar verslanir, sérverslanir eða stærri keðjur, þá bjóðum við upp á lausnir sem taka mið af þörfum hvers og eins rekstrar.
Iðnaðarlausnir
Við hjá Kælitækni bjóðum upp á fjölbreyttar lausnir fyrir atvinnulíf og iðnað þar sem gæði, áreiðanleiki og orkusparnaður skipta miklu máli. Í samstarfi við öfluga birgja eins og MYCOM, TEKO, Rivacold, MIDEA, Purever og Nergeco útvegum við lausnir sem henta íslenskum aðstæðum – hvort sem um er að ræða kæli- og frystikerfi, varmadælur, hurðir eða kæli- og frystiklefar