ThermIT síritakerfi

Algjörlega „food safe“ lausn fyrir nákvæma og áreiðanlega hitamælingu

Við hjá Kælitækni erum með síritakerfi frá Danska fyrirtækinu Thermit. 
Síritakerfið er eina kerfið á markaðnum í dag sem er með hitanema sem titlast algjörlega “food safe”.

Það kemur til vegna þess að rafhlaðan er steypt inní nemann og því hvergi göt eða raufar þar sem drulla og bakteríur geta safnast fyrir. Rafhlaðan dugar að jafnaði í 4-6 ár og þá þarf að skipta nemanum út. Við sendum svo nema út í endurvinnslu.

Thermit vöktunina er hægt að skoða á þínu svæði í gegnum heimasíðuna og einnig í gegnum app í síma. Aðvaranir er svo hægt að fá í formi e-mail eða sms í síma. Kerfið er hægt að stilla þannig að það sendi þér hitastigsskýrslur einu sinni í mánuði, viku eða bara eins og þú vilt.

Uppsetning er einföld og þægileg. Í raun þarf einungis að koma móðurstöðinni fyrir og stinga henni í samband. Hitanemarnir eru þráðlausir og eru þeir því settir á sinn stað.

Ef þú vilt fá nánari kynningu getur þú sent okkur tölvupóst með því að smella hér að neðan, einnig er hægt að skoða kynningarbæklinginn. 

ThermIT-vara

Við hjálpum þér að finna réttu lausnina

Scroll to Top

Við notum vafrakökur til að tryggja góða virkni vefsins og bæta upplifun þína. Skoða nánar