Case study
Center Hotels
Center Hotels hafði áhuga á að bæta þjónustu við gesti með því að koma fyrir display-kæli í móttökurými hótelsins. Kælirinn átti að geyma drykki og snarl sem gestir gætu verslað – en rýmið sem unnið var með var mjög afmarkað og krafðist góðs undirbúnings.
Viðskiptavinur
Center Hotels
Ár / tímabil
Sumar 2025
Staðsetning
Reykjavík
Áskorun
Hótelinu vantaði nýjan display kæli í andyri hótelsins, skápurinn krafðist þess að líta vel út auk þess sem að plássið var mjög takmarkað og krafðist sérhönnunar frá okkar byrgja.
Markmið viðskiptavinar
- Að finna stílhreinan kæli sem myndi passa fullkomlega í rýmið. Lausnin þurfti bæði að sinna sínu hlutverki sem kælir auk þess að líta vel út í afgreiðslu hótelsins.
Lausn Kælitækni
Eftir ítarlega leit að tilbúnum lausnum kom í ljós að enginn staðlaður kælir passaði í rýmið og því var ákveðið að fara í sérsmíði. Kæliskápurinn sjálfur var sérpantaður frá AKE í Austurríki og hannaður í samráði við Center Hotels, þar sem litaval, lýsing og frágangur voru sniðin að óskum viðskiptavinarins.
Framkvæmd
Þarfagreining
Kælitækni fór á staðinn og mældi svæðið sem um ræddi.
Samskipti við birgja
Sölumenn Kælitækni áttu í samskiptum við okkar birgja og fljótlega kom í ljós að enginn þeirra átti kæli sem passaði í bilið.
Klæðskerasniðin lausn
Við leituðum til Austurríska fyrirtækisins AKE. AKE sérhæfir sig í sérsmíðuðum lausnum. Við sendum málin á þau og fengum tilbaka flotta teikningu af sérsmíðinni. Þarna er hægt að velja um lit, útlit og lýsingu sem tryggir að lausnin er klæðskerasniðin að þörfum kaupandans.
Hönnun og smíði
Þegar kælirinn var kominn til landsins smíðaði tæknimaður okkar kerfi til þess að knýja kælinn. Að því loknu fór um það bil dagur í það að setja upp kerfið og kælinn á verkstað.
Niðurstöður og ávinningur
Lokaniðurstaðan var glæsileg og góð lausn sem uppfyllti öll markmið verkefnisins þar sem kælirinn smellpassaði í rýmið og samræmdist útliti hótelsins
Verkefnið er gott dæmi um að Kælitækni leggur sig fram við að finna réttu lausnina fyrir hvern og einn viðskiptavin – hvort sem um ræðir staðlaðan búnað eða sérsmíðaðar útfærslur sem aðlagaðar eru að aðstæðum.





