Kælitækni hefur gengið í gegnum eigendaskipti þar sem fjórir lykilstarfsmenn fyrirtækisins – Valur Ásberg Valsson framkvæmdastjóri, Elís H. Sigurjónsson tæknistjóri, Hörður Fannar Björgvinsson þjónustustjóri og Elías Halldór Ólafsson, nýr fjármálastjóri hafa tekið við sem eigendur ásamt fjárfestingafélaginu Sjávarsýn ehf.
Nýju eigendurnir, sem leiða helstu svið fyrirtækisins, þekkja starfsemina vel og sjá fjölmörg tækifæri til að efla fyrirtækið enn frekar á þeim sterka grunni sem lagður hefur verið og leiða það inn í nýtt vaxtarskeið.
Starfsmennirnir fjórir munu eiga saman 65% hlut í fyrirtækinu, á meðan fjárfestingafélagið Sjávarsýn ehf. mun eiga 35% hlut. Þessi skipting undirstrikar trú og skuldbindingu starfsmannanna gagnvart framtíð Kælitækni og vilja þeirra til að hafa raunveruleg áhrif á þróun og stefnu fyrirtækisins.
„Við viljum þakka fyrri eigendum fyrir þeirra framlag og góða samstarf. Kælitækni er rótgróið fyrirtæki með frábært starfsfólk og við sjáum mikil tækifæri til að halda áfram að þróa starfsemina á næstu árum,“ segir Valur Ásberg Valsson, framkvæmdastjóri og einn nýrra eigenda Kælitækni.
Kælitækni mun halda áfram að byggja á sterkum grunni fyrri ára og vinna í nánu samstarfi við viðskiptavini og birgja að þróun hagnýtra, sjálfbærra og orkusparandi lausna.