Ertu tilbúin?
Freonkerfi heyra bráðum sögunni til - Er þitt fyrirtæki tilbúið?
Til að draga úr loftslagsáhrifum hefur verið sett bann við áfyllingu á kælikerfum sem nota kælimiðla með háan hnatthlýnunarmátt (GWP). Ef kælikerfið þitt:
- Inniheldur kælimiðil með GWP yfir 2500, og
- Inniheldur meira en 40 tonn af CO2 jafngildi
Þá gildir um það:
- Frá 2020: Óheimilt að nota ný efni til viðgerða eða viðhalds
- Frá 2030: Óheimilt að nota endurnýtt eða endurunnið efni
Hvað er til ráða?
Ef kerfið þitt fellur undir þessi skilyrði, hefur þú þrjá valkosti
- Skipta út kerfinu – Yfir í nýtt, orkusparandi og umhverfisvænt kerfi
- Nota „drop-in“ kælimiðil með lægri GWP sem hentar eldri kerfum (t.d. R452 eða R449A)
Nota endurunnin efni (leyfilegt til 2030 undir skilyrðum)
Ekki bara lög og reglur
Þetta snýst ekki aðeins um að fylgja reglum heldur líka rekstur og framtíðarsýn
✔ Lægra kolefnisspor og minni áhrif á loftslag
Nýrri kælimiðlar hafa lítinn eða engan GWP. Þeir stuðla að sjálfbærni og hjálpa fyrirtækinu þínu að uppfylla umhverfiskröfur framtíðarinnar.
✔ Betri orkunýting
CO₂ og ammóníak eru oft orkusparandi lausnir sem geta lækkað rafmagnskostnað til muna – og minnkað kolefnisspor.
✔ Lengri líftími og minni áhætta
Með því að fara í framtíðarlausn núna spararðu þér kostnað, áhyggjur og mögulegar sektir í framtíðinni. Þú tryggir samkeppnishæfni og rekstraröryggi.
✔ Bætir ímynd fyrirtækisins
Vaxandi fjöldi fyrirtækja setur sjálfbærni og umhverfisábyrgð í forgang. Með því að taka skrefið núna sýnir þú samfélagslega ábyrgð og styrkir traust við viðskiptavini og samstarfsaðila.
Sérstaða Íslands
Hraðari útfösun
Ísland er með sérstakt kvótakerfi fyrir HFC-efni.
Útfösun freongasa gengur hraðar hér en í flestum Evrópulöndum.
Skattar og takmarkanir gera notkun freons flóknari og dýrari með hverju árinu.
Hvað getur Kælitækni gert fyrir þig?
Við sérhæfum okkur í umhverfisvænum kælikerfum
Við hjá Kælitækni:
Gerum úttekt á núverandi kerfi.
Metum hvort kerfið þitt fellur undir bannið.
Ráðleggjum þér um hvað hentar best fyrir þinn rekstur – hvort sem það er nýtt kerfi, drop-in lausn eða skipti á kælimiðli.
Sýnum þér hvernig þú getur sparað rafmagn, mætt lagalegum kröfum og minnkað loftslagsáhrif.