Kælitækni tekur þátt í sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll dagana 10.–12. september og mun kynna nýjustu lausnir í kæli- og varmatækni fyrir iðnaðinn.

Áherslan verður á iðnaðarvarmadælur sem bjóða upp á bæði orkusparnað og umhverfisvænar lausnir. Með þessum lausnum er hægt að nýta orkuna tvisvar – í kælingu og upphitun – sem skilar lægri rekstrarkostnaði og meiri hagkvæmni til framtíðar.

Við verðum með fulltrúa frá okkar nánustu samstarfsaðilum, TEKO, Carel og Mycom, sem munu kynna tæknina og sýna fram á hvernig hún getur bætt rekstur í sjávarútvegi og öðrum iðnaði.

👉 Við hvetjum gesti sýningarinnar til að koma við á bás C-100 og kynna sér lausnir framtíðarinnar í kæli- og varmatækni.

Scroll to Top

Við notum vafrakökur til að tryggja góða virkni vefsins og bæta upplifun þína. Skoða nánar