Mannræktarinn okkar fagnaði 90 ára afmæli

Á föstudaginn héldum við hjá Kælitækni upp á einstök tímamót þegar Magnús Þorsteinsson, sem margir myndu einfaldlega kalla gleðigjafa fyrirtækisins, varð 90 ára. Við slógum upp veislu með köku og brauðtertu, honum færð gjöf og nokkur orð sögð til að þakka honum fyrir allt sem hann gefur okkur á hverjum degi.

Maggi ber titilinn mannræktari hjá Kælitækni — og það er svo sannarlega nafn með rentu. Hann sér um eldhúsið og matsalinn okkar, hefur í gegnum tíðina hlaupið í sendiferðir þegar á hefur þurft að halda, og gerir það allt með sömu hlýjunni og glaðværðinni sem einkennir hann. Söngelskur, sí-brosandi og með þann eiginleika að lýsa upp hvert rými sem hann gengur inn í.

Á vinnustað þar sem starfsfólk kemur og fer, verkefni breytast og áherslur þróast, er Maggi fastur punktur sem minnir okkur öll á að fyrirtæki er fyrst og fremst fólk. Hann hefur með nærveru sinni og natni mótað menninguna hjá okkur meira en flestir gera sér grein fyrir.
Til hamingju með daginn, kæri Maggi — og takk fyrir að vera nákvæmlega sá sem þú ert.

Scroll to Top

Við notum vafrakökur til að tryggja góða virkni vefsins og bæta upplifun þína. Skoða nánar