Case study
Kæli- og frystiklefar Ölgerðarinnar
Fyrir Ölgerðina sáum við um hönnun og uppsetningu á einu umfangsmesta HEOS CO₂‑verkefni Kælitækni til þessa. Um er að ræða 10.000 m³ frystigeymslur og 3.000 m³ kæliklefa á Köllunarklettsvegi, sem byggja á HEOS HYBRID tækni – samsetningu loftkældra og vatnskældra eininga.
Viðskiptavinur
Ölgerðin
Ár / tímabil
2025-2026
Staðsetning
Köllunarklettsvegur
Áskorun
Ölgerðin stefndi að því að færa starfsemi Danól alfarið í eigin umsjón og sameina geymslu og dreifingu á kæli‑ og frystivörum fyrir bæði stórmarkaði og smásölu undir eitt þak. Hingað til hafði starfsemin verið í útvistun hjá Eimskip, og því þurfti að byggja nýjar geymslur frá grunni – án þess að raska daglegum rekstri að ráði.
Verkefnið fól í sér sérstaka áskorun: að gera viðskiptavininum kleift að hefja starfsemi nánast samstundis, án þess að bíða eftir fullkláruðum kæli‑ og frystiklefum. Jafnframt voru gerðar ríkar kröfur um umhverfisvæna lausn og lægri rekstrarkostnað til lengri tíma.
Markmið viðskiptavinar
Hýsa allar vörur í eigin húsnæði til að auðvelda dreifingu og geymslu á einum stað
Umhverfisvænt sjónarmiðið með CO₂-kælikerfi og lágmarks kolefnisspori
Lækka rekstrarkostnað til lengri tíma litið og aukið sjálfræði í vörustjórnun
Lausn Kælitækni
Framkvæmd
Uppsetning á eldri klefa — bráðabirgðalausn
HEOS-lausn var sett upp á gamla klefa sem þegar var í húsnæðinu. Þetta gaf Ölgerðinni strax aðgang að kæli- og frystirými og gerði þeim kleift að krossdokka vörur frá Eimskip á meðan nýr klefi var reistur.
Klefaeiningar, hurðir og vélbúnaður
Kælitækni sá um hönnun og uppsetningu á klefaeiningum, hurðum og öllum vélbúnaði fyrir nýjan 10.000 m³ frystiklefa og 3.000 m³ kælihluta. HEOS HYBRID-kerfin — alls 17 talsins — voru sett upp ofan á klefaeiningunni.
Nýr klefinn ræstur á 8 HEOS-kerfum
Nýi klefinn var gangsettur með 8 HEOS-kerfum. Þar sem kerfin eru í flokki Art. 4.3 er engin þörf á sér vélarými eða sértækum úttektum, sem einfaldaði uppsetningu verulega.
Flutningur kerfa af gamla klefa
Þegar nýi klefinn var fullkominn var slökkt á gamla klefanum og HEOS-kerfin þaðan flutt yfir á nýja klefann. Með þessum hætti varðveitti Ölgerðin alla upphafsfjárfestinguna.
Niðurstöður og ávinningur
Starfssemin komin í eigið húsnæði
Ölgerðin getur nú hýst allar kæli- og frystivörur Danól á einum stað á Köllunarklettsvegi. Þetta gefur þeim fullt yfirráð yfir vörustjórnun, dreifingu og þjónustu við viðskiptavini.
Sveigjanleg lausn — fyrri fjárfesting nýtt áfram
Með sveigjanlegu uppbyggingu HEOS-kerfanna gat Ölgerðin hafið starfsemi um leið og uppbygging stóð yfir og endurnýtti kerfin af gamla klefanum þegar nýi klefinn var kláraður. Engin fjárfesting fór til spillis.
Umhverfisvæn CO₂-tækni — Art. 4.3 flokkur
CO₂-kælikerfi uppfyllir strangar umhverfiskröfur. Þar sem kerfin eru í flokki Art. 4.3 er enginn kröfur um sérstakt vélarými, en það þýðir lægri byggingakostnaður, minni viðhaldsþörf og lægri rekstrarkostnaður til lengri tíma.
Með þessum klefum höfum við komið vöruhúsi og dreifingu Danól undir sama þak, dregið úr kolefnisspori okkar með CO₂- kerfum og nýtt upphafsfjárfestinguna áfram þegar við fluttum kerfin yfir. Markmiðin sem við settum okkur í upphafi náðust, eitthvað sem er ekki alltaf gefið í svona stórum verkefnum
Gunnlaugur Einar Briem, framkvæmdastjóri vörustjórnunarsviðs Ölgerðarinnar




