Case study

Prís í Kópavogi

Príslogo

Þegar Prís opnaði sína fyrstu verslun í Kópavogi haustið 2024 var lögð sérstök áhersla hagkvæmni í rekstri og sjálfbærni frá fyrsta degi. Kælitækni tók þátt í þeirri vegferð með heildarlausn sem nýtir nýjustu tækni í kælingu – HEOS CO₂ kerfi hannað af Kælitækni – sem tryggir bæði orkusparnað, minni umhverfisáhrif og sveigjanleika til framtíðar.

Viðskiptavinur

Prís Kópavogi

Ár / tímabil

Sumar og haust 2024

Staðsetning

Smáratorgi Kópavogi

Áskorun

Ný verslun krefst kælikerfis sem getur tryggt stöðugt hitastig í fjölbreyttum vöruflokkum, jafnvel við mikla umferð og sífelldar hitasveiflur í rýminu. Á sama tíma þarf lausnin að skila hámarks orkunýtni, uppfylla strangar reglugerðir um umhverfisvæna kælimiðla og passa inn í þéttu tæknirými verslunarinnar án þess að raska rekstri eða útliti. Þetta kallar á tæknilega nákvæmni, skýra hönnun og áreiðanlegan búnað sem stenst kröfur dagsins í dag — og morgundagsins.

Markmið viðskiptavinar

Prís þurfti á kælikerfi að halda sem getur haldið nákvæmu og stöðugu hitastigi í fjölbreyttum vöruflokkum — allt frá ferskvöru til frystivara — óháð umferð viðskiptavina eða hitasveiflum í rýminu.

Markmiðið var að minnka orkunotkun og auka rekstraröryggi nýrrar verslunar, bæði til að lækka heildarkostnað og tryggja sem minnsta truflun í daglegum rekstri.

Prís vildi lausn sem uppfyllir strangar kröfur um sjálfbærni, notar umhverfisvænan kælimiðil (svo sem CO₂) og einfaldar viðhald og rekstur til lengri tíma.

Lausn Kælitækni

Kælitækni sá um að hanna, setja upp og gangsetja alla kæla og frysta í verslun Prís á Smáratorgi og innleiddi þar 13 HEOS kerfi. HEOS‑lausnin byggir á íslenskri hönnun og hugviti og er talin umhverfisvænasta og orkusparandi kælitæknin sem völ er á í dag. Kerfin eru einstaklega sveigjanleg — þau geta virkað sem kælar, frystar eða blanda af báðu, taka lítið pláss og er auðvelt að aðlaga þeim að mismunandi þörfum verslunarinnar.
Með HEOS‑kerfunum náði Prís verulegum rekstrarárangri: kerfin spara versluninni 25–35% í rafmagnsnotkun miðað við hefðbundin kolsýrukerfi, og nýta jafnframt varmann sem kælarnir gefa frá sér til að hita upp verslunina. Prís er fyrsta verslunin á Íslandi sem nýtir HEOS‑kerfi á þennan hátt, sem dregur bæði úr hitakostnaði og minnkar kolefnisspor verslunarinnar. Þar sem kerfið byggir á kolsýru í stað Freon skilar það auk þess mikilli umhverfisbót — bæði í losun og orkunýtni.

Framkvæmd

Mars, 2024
Hönnun og forvinnsla

Kælitækni vann nákvæma hönnun á lausninni út frá rýmisskipulagi verslunarinnar og þörfinni fyrir bæði kæla og frysta. Val á 13 HEOS einingum tryggði að kerfið mætti öllum flokkum vörunnar á sem hagkvæmastan hátt.

Mars, 2024
Júní - Ágúst 2024
Uppsetning

 Allir kælar og frystar voru settir upp og tengdir við nýju HEOS kerfin með áherslu á lágmarks truflun í byggingarframkvæmdum. Einhver kerfi voru stillt sem kælar, önnur sem frystar — og sum sem blanda, eftir þörfum Prís.

Júní - Ágúst 2024
Ágúst 2024
Stillingar

Kerfin voru fínstillt til að ná hámarks orkusparnaði og tryggja stöðugt hitastig í öllum kælilínum. Að auki var varmanum sem kerfin gefa frá sér beint í hitakerfi verslunarinnar, sem er fyrsta sinn sem þessi aðferð er notuð í íslenskri matvöruverslun.

Ágúst 2024
September 2024
Gangsetning og yfirfærsla

Að lokinni uppsetningu voru kerfin prófuð undir raunálagi, gangsett og yfirfærð til rekstrarteymis Prís ásamt leiðbeiningum um daglegan rekstur og viðhald. Lausnin var afhent tilbúin í notkun með fullu stöðugleika‑ og afkastaprófi.

September 2024

Niðurstöður og ávinningur

25-35% minnkun á rafmagnskostnaði

HEOS kerfin minnkuðu rafmagnsnotkun verslunarinnar um 25–35% samanborið við hefðbundin CO₂ kerfi. Þetta lækkar rekstrarkostnað umtalsvert og styrkir langtíma rekstrargrundvöll Prís.

Nýting varma til upphitunar – fyrsta verslunin á Íslandi til að gera það

Prís er fyrsta verslunin á landinu sem nýtir varmann frá HEOS kerfunum til að hita upp verslunarrýmið. Þetta dregur bæði úr hitakostnaði og minnkar heildarorkuþörf verslunarinnar.

Umhverfisávinningur – skipt úr Freon yfir í kolsýrulausn

Með CO₂ sem kælimiðil minnkar Prís kolefnisspor sitt verulega. 1 kg af CO₂ jafngildir aðeins um 7 km akstri, á meðan 1 kg af Freon jafngildir tæplega 10.000 km. Kerfin eru þar með bæði umhverfisvænni og framtíðartrygg lausn.

Sveigjanleg lausn sem auðveldar rekstur

HEOS kerfin taka lítið pláss, eru auðveld í uppsetningu og hægt að stilla sem kæla, frysta eða blöndu af báðu — allt eftir þörfum. Þetta eykur rekstrarhagkvæmni og gerir versluninni kleift að laga sig hratt að breyttum þörfum viðskiptavina.

Við hjá Prís leitum allra leiða til að halda kostnaði í lágmarki svo við getum tryggt almenningi lægsta verðið á matvöru á landinu. Það var því auðvelt val að velja Heos kerfi frá Kælitækni, sem sparar okkur talsverða fjármuni í rekstrarkostnaði til langs tíma. Auk þess sem kerfið er það umhverfisvænasta á markaðnum í dag. Því það liggur ljóst fyrir að fjárfesting í umhverfismálum er góð fyrir langtíma hagsmuni Prís og okkar viðskiptavina

Myndir úr verkefninu

Sjá fleiri verkefni

Vertu í sambandi við söluráðgjafa okkar til að finna réttu lausnina fyrir þig

Scroll to Top

Við notum vafrakökur til að tryggja góða virkni vefsins og bæta upplifun þína. Skoða nánar