Nýjar kæli‑ og frystigeymslur fyrir Ölgerðina
Kælitækni hefur lokið við uppsetningu á nýjum kæli‑ og frystigeymslum fyrir Ölgerðina á Köllunarklettsvegi. Verkefnið er eitt það umfangsmesta sem fyrirtækið hefur unnið með HEOS og nær yfir 10.000 m³ af frystigeymslum og 3.000 m³ af kæligeymslum.
Með nýju geymslunum getur Ölgerðin tekið vörugeymslu og dreifingu Danól alfarið í eigin rekstur og sameinað starfsemina undir einu þaki. Hingað til hafði þessi starfsemi verið í útvistun, en nýja lausnin eykur bæði rekstraröryggi og sveigjanleika til framtíðar.
Verkefnið var hannað og unnið í áföngum til að tryggja að starfsemi gæti hafist samhliða uppbyggingu, án truflana á afhendingu eða daglegum rekstri. Lausnin leggur jafnframt áherslu á hagkvæman og sjálfbæran rekstur til lengri tíma.