Verkefnin okkar

Framsæknar og fjölbreyttar lausnir um land allt

Við hjá Kælitækni vinnum að fjölbreyttum verkefnum fyrir verslanir, matvælaframleiðendur og fyrirtæki í öllum stærðum og atvinnugreinum. Hér getur þú skoðað dæmi um lausnir sem við höfum hannað og innleitt — allt frá orkusparandi kælikerfum og varmadælum til heildstæðra uppfærslna í stórum verslunum. Hvert verkefni endurspeglar fagmennsku okkar, tækniþekkingu og þá áherslu að skapa hagkvæmar og sjálfbærar lausnir sem henta íslenskum aðstæðum.

Hagkaup

Í samstarfi við Kælitækni hefur Hagkaup frá árinu 2017 unnið að því að yfirfæra allar verslanir sínar yfir í vistvæn CO₂ kælikerfi. Verkefninu lauk formlega í apríl 2024 og hefur leitt til allt að 25% minnkunar á kolefnislosun. Með þessari breytingu hefur Hagkaup náð að uppfylla markmið sín um minni umhverfisáhrif og betri orkunýtingu. Kælikerfin sem notuð voru í verkefninu eru aðallega frá TEKO og hluti frá Carel, en uppsetning og verkefnastýring var alfarið í höndum Kælitækni.

Prís

Þegar Prís opnaði sína fyrstu verslun í Kópavogi haustið 2024 var lögð sérstök áhersla hagkvæmni í rekstri og sjálfbærni frá fyrsta degi. Kælitækni tók þátt í þeirri vegferð með heildarlausn sem nýtir nýjustu tækni í kælingu – HEOS CO₂ kerfi hannað af Kæltitækni – sem tryggir bæði orkusparnað, minni umhverfisáhrif og sveigjanleika til framtíðar.

IMG_2683

Center Hotels

Center Hotels hafði áhuga á að bæta þjónustu við gesti með því að koma fyrir display-kæli í móttökurými hótelsins. Kælirinn átti að geyma drykki og snarl sem gestir gætu verslað – en rýmið sem unnið var með var mjög afmarkað og krafðist góðs undirbúnings.

Ölgerðin

Fyrir Ölgerðina sáum við um hönnun og uppsetningu á einu umfangsmesta HEOS CO₂‑kælikerfiverkefni Kælitækni til þessa. Um er að ræða 10.000 m³ frystigeymslur og 3.000 m³ kæliklefa á Köllunarklettsvegi, sem byggja á HEOS HYBRID tækni – samsetningu loftkældra og vatnskældra eininga.

Við hjálpum þér að finna réttu lausnina

Scroll to Top

Við notum vafrakökur til að tryggja góða virkni vefsins og bæta upplifun þína. Skoða nánar